Tekinn á teppiđ af Balda Kára
sksiglo.is | Almennt | 25.06.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1023 | Athugasemdir ( )
Þegar ég var á svokallaðri föstudagsgöngu minni í gegn um
miðbæinn á leið í vinnu síðasta föstudag fékk ég ansi hreint hressandi og skemmtilegan lestur yfir mig frá honum Balda
Kár.
Þegar ég var að ganga alveg hreint uppgefinn framhjá Allanum var Baldi Kára
og Lóa þar og var hann bara alls ekkert að skafa af því hverslags aumingjagangur það væri að taka engar myndir og hafa enga umfjöllun um alla
smábátaútgerðina og strandveiðarnar á Siglufirði akkúrat þá stundina. Þessi öðlingur sem vanalega er hvers manns
hugljúfi sýndi nú á sér nýja og hrjúfari hlið þegar kom að smábátaútgerðinni. Þetta kom líka ansi
hreint flatt upp á mig af því að Baldi hefur vanalega verið fyrsti maður til að hlaupa í burtu ef hann sér mig koma með myndavélina.
Þó svo ég sé nú sjómannssonur og á ættir að rekja til sjómanna lengst aftur í ættir í móður og
föðurætt, þá hef ég ógurlega lítið vit á trilluútgerðinni þó svo að mér hafi alltaf fundist hún
frekar heillandi, meira að segja það heillandi að ég er að spöggulera í því að fara í pungaprófið (fyrir
báta).
En fyrst Baldi Kára var svona ljúfur að benda mér á þennan
aumingjagang í mér á svona hressandi og skemmtilegan máta var ekkert annað í stöðunni en það að taka myndir af smábátunum
við höfnina og að sjálfsögðu af Balda á bryggjunni. Reyndar var ógurlega gott að fá svona komment á það að það
vantaði umfjöllun um nákvæmlega þetta málefni. Stundum sér maður bara hreinlega ekki það sem er alveg beint fyrir framan augun á
manni.
Í dag eru á bilinu 40 til 50 smábátar sem gera út frá
Sigló og að sjálfsögðu er lífið mikið í kring um höfnina sem er alveg hreint ljómandi skemmtilegt, svo ekki sé talað um allan
ferðamannafjöldann sem leggur leið sína niður á höfn.
Hér bíða þeir eftir að komast að löndunarkrananum.
Óðinn Freyr hjá Fiskmarkaðnum.
Jón Hólm.
Og hér er svo þessi ljúflingur hann Baldi Kára vinur minn.
Halldór Bogi.
Trausti EA. Hér er að mínu mati og líklega margra annarra líka, fallegasti bátur smábátaflotans.
Kjartan Óla hafnarvörður skráði allt samviskusamlega niður sem þeir Óðinn Freyr og Jón Hólm komu með á vigtina.
Hér er svo reyndar einn virkilega fallegur. Fallegur bátur meina ég þá. Fegurð eiganda bátsins er svo mjög umdeild.
Athugasemdir