Þriðjudaga klukkan 10:30
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 27.04.2010 | 14:48 | | Lestrar 590 | Athugasemdir ( )
Myndir af gestum á ljósmyndasýningu á vegum Ljósmyndasafns Siglufjarðar þriðjudaginn 27. Apríl 2010 í Skálarhlíð, dvalarheimili aldraðra á Siglufirði.
Slík sýning hefur farið fram á hverjum þriðjudegi undanfarna mánuði og verður áframhald á þessum sýningum þar sem hverju sinni eru sýndar á tjaldi um 100 myndir.
Sýningarnar gegna tvennskonar tilgangi, Það er að veita eldra fólkinu á Sigló ákveðna upplifun og dægurstyttingu, svo og að njóta góðs af minningum fólksins sem lætur í té upplýsingar um fólkið á myndunum og annað sem það þekkir.
Um 80 % „heimtur“ eru á nafngiftum mynda, sem jafnóðum er skráð í gagnagrunn Ljósmyndasafns Siglufjarðar. Þarna mætir fólk sem er búsett að Skálarhlíð og fólk sem býr í heimahúsum.
Fjöldi þeirra sem að jafnaði mæta á sýningarnar er um það bil 20 – 30 manns.
Smelltu HÉR til að skoða.

Athugasemdir