Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
sksiglo.is | Viðburðir | 15.11.2009 | 16:00 | | Lestrar 115 | Athugasemdir ( )
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða í Glerárkirkju sunnudaginn 15. nóvember kl. 16:00.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir S. Prokofieff, R. Wagner og L.van Beethoven. Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er nú á sínu 17. starfsári og hefur starfsemi hljómsveitarinnar aukist jafnt og þétt með hverju árinu. Á tónleikunum 15. nóvember tekst hljómsveitin á við tvær sinfóníur.
Annarsvegar er það sinfónía eftir Sergei Prokofieff, oft nefnd Klassíska sinfónían. Sagt er að Prokofieff hafi samið þessa sinfóníu þegar hann dvaldi í fríi úti á landi og notaði hana sem æfingu í að semja án þess að hafa píanó sér til halds og trausts. Sinfónía sem var frumflutt árið 1918 er afar þekkt verk og ýmis stef úr henni oft notuð í auglýsingar og sjónvarpsefni.
Hin sinfónían sem flutt verður er Sinfónía nr. 8 í F dúr eftir L.van Beethoven sem frumflutt var árið 1814. Þessi sinfóníu kallaði Beehoven “litlu sinfónían”, enda mun minni í sniðum en aðrar sinfóníur hans. Þessi sinfónía einkennist þó ekki síður af krafti, sjálfstæði og frumleika. Um hana hefur verið sagt að hún sé sem hlátur manns sem hefur lifað og þolað ýmislegt á leið sinni á toppinn.
Eftir Wagner verður flutt Sigfried Idyll eða Sveitasæla Sigurðar Fáfnisbana, en þetta verk samdi Wagner sem afmælisgjöf til konu sinnar. Verkið er blítt og rólegt enda Wagner uppnumin af ástinni á þessum tíma.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hélt sína fyrstu tónleika 24. október 1993 Kjarni hljómsveitarinnar hefur frá upphafi verið kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri og hópur hljóðfæraleikara sem býr og starfar á landsbyggðinni. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur haldið tónleika á Akureyri og víða á Norðurlandi og fengið til liðs við sig kóra, einleikara og einsöngvara frá Akureyri og úr nágrannabyggðum og þannig stutt við og auðgað norðlenskt tónlistarlíf. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur á hverju ári um 30 skólatónleika í grunnskólum á Norðurlandi. Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri stundaði nám í hljómsveitarstjórn í Hollandi og Finnlandi. Guðmundur Óli hefur starfað sem hljómsveitarstjóri með Sinfóníuhljómsveit Íslands, bæði á tónleikum og við upptökur. Hann hefur komið fram sem stjórnandi Kammersveitar Reykjavíkur, Íslensku hljómsveitarinnar og Caput. Guðmundur Óli hefur stjórnað frumflutningi verka margra íslenskra tónskálda, stjórnað óperuuppfærslum svo og kórum og hljómsveitum áhugamanna og nemenda.
Sem fyrr segir þá hefjast tónleikarnir kl. 16:00 í Glerárkirkju og er forsala aðgöngumiða í á midi.is.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis fyrir 20 ára og yngri.

Athugasemdir