Trefillinn tilbúinn

Trefillinn tilbúinn Fríða Gylfadóttir var í gærkvöldi ásamt hópi af duglegu prjónafólki að taka á móti síðustu bútunum í trefilinn.

Fréttir

Trefillinn tilbúinn

Það var nóg að gera á vinnustofu Fríðu
Það var nóg að gera á vinnustofu Fríðu
Fríða Gylfadóttir var í gærkvöldi ásamt hópi af duglegu prjónafólki að taka á móti síðustu bútunum í trefilinn.

Vel hefur gengið á lokasprettinum og er trefillinn nú orðinn 11,3 km að lengd.

Það styttist nú í stóra daginn og verður trefillinn saumaður saman í Héðinsfirði við hátíðlega athöfn.

Þetta verkefni er búið að sameina fjölmargt fólk víðsvegar um landið í hlýhug til Fjallabyggðar auk þess sem fjöldi fólks beggja vegna Héðinsfjarðar hefur komið saman og átt góða stund við prjónaskapinn.

Árangur erfiðisins er nú kominn ljós og eru það rúmlega þúsund manns sem hafa lagt hönd á plóg.

Komandi helgi verður lengi í minnum höfð og laugardagurinn 2. október verður framvegis merkisdagur í sögu bæjarins.

Trefillinn er skýrt dæmi um það hversu mikilvæg þessi göng eru fyrir íbúa á svæðinu og er það einstætt afrek hjá prjónafólki að ná 11,3 kílómetrum á ekki lengri tíma.



Hér má sjá bútana tvo sem saumaðir verða saman í Héðinsfirði í tilefni opnunar Héðinsfjarðarganga.




Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst