Tryggvi Þór Herbertsson vill á þing
Tryggvi Þór Herbertsson hefur ekki tekið þátt pólitísku starfi áður. Hann var nýlega ráðinn prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Áður var Tryggvi efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, forstjóri Askar Capital og forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
„Þessi ákvörðun um framboð á rætur sínar að rekja til þess að það er leitað til mín. Þá hafa margir haft samband og lýst yfir stuðningi við mig þannig að hljómgrunnurinn fyrir mínu framboði sýnist mér ágætur. Ég renni því ekki alveg blint í sjóinn. En það er gott fólk fyrir á lista þannig að þetta verður barátta. Næstu þrjár vikur snúast um það að sannfæra fólk um að ég hafi eitthvað framyfir það ágæta fólk. Ákvörðunin tónar líka ágætlega við það sem sem fólk hefur verið að óska eftir, annars vegar endurnýjun og hins vegar að inn á framboðslista veljist fólk sem kemur ekki eingöngu úr flokksstarfinu heldur fagfólk með reynslu úr atvinnulífinu,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson.
Athugasemdir