Tveir dómar um gengistryggð lán
bjoval.hexia.net/faces/blog/list.do?face=bjoval | Rebel | 13.02.2010 | 14:00 | Robert | Lestrar 299 | Athugasemdir ( )
Nú liggja fyrir tveir andstæðir dómar um áþekk mál.
þ.e. um lagalegt gildi þess að binda íslensk lán við gengi erlendra
gjaldmiðla gagnvart krónunni. Fyrri
dómurinn féll í byrjun desember 2009 þar sem talið var að
fyrirkomulag þessara lána væri innan ramma laga en í gær var kveðinn upp
annar
dómur þar sem gengistryggð lán var sagt ólögleg. Hæstiréttur mun á
endanum skera úr um lyktir þessa máls sem skiptir marga svo miklu máli.Fari svo að Hæstiréttur dæmi þessi lán ógild er ljóst að
eitthvað mun þurfa að koma í staðin og verður gaman að sjá hverjar
kröfur lánastofnana verða í því sambandi. Sömuleiðis hlýtur það að
skipta máli hverjar kröfur lántakenda voru á þeim tíma sem lán voru
tekin, þ.e. hvort þeir þá töldu hag sínum betur borgið með því að taka
lána tengdum stöðu íslensku krónunna gagnvart öðrum miðlum. Hver er
ábyrgð þeirra? Það eru ekki svo mörg ár (mánuðir) síðan það var talið
hið mesta óráð, bæði af lánveitendum og lántakendum, að taka íslensk,
verðtryggð lán þegar í boði var að taka þau á lágum vöxtum tryggð í
erlendri mynt. Það verður ekki bæði haldið og sleppt.
En úr þessu verður að fást skorið með afgerandi hætti og það fyrr en seinna.
En úr þessu verður að fást skorið með afgerandi hætti og það fyrr en seinna.
Athugasemdir