Tveir gullmolar úr Kolaportinu
123.is/toti7/ | Rebel | 03.02.2009 | 04:46 | Robert | Lestrar 386 | Athugasemdir ( )
Ég brá mér í Kolaportið meðan ég stoppaði fyrir sunnan og náði mér í
slatta af ljóðabókum í safnið, nema hvað, og auk þess nokkrar
hljómplötur með ljóðalestri og eða söng. Þarna reyndust nokkrir
gullmolar á ferð og ætla ég hér að nefna tvo. Annar þeirra er ljóðabók
eftir Jakob Thorarensen sem heitir Haustsnjóar og er gefin út 1942.
Þegar heim kom og ég fór að skoða gripinn nánar sá ég að hún er árituð
af höfundi og er númer 59 af 75 tölusettum eintökum. Hinn gullmolinn
er á persónulegri nótunum. Ein ljóðabókanna er eftir skáldkonu að
nafni Lilja Björnsdóttir og var hún frá Þingeyri, hagmælt mjög og
ljóðabók þessi hin áhugaverðasta. Nokkur eftirmæli eru í bókinni og
viti menn ein þeirra eru um langömmu mína, sem hét Bjarney
Sveinbjörnsdóttir, en við húskveðju við kistu hennar voru skírð tvö
barnabörn hennar. Fallegt ljóð um góða konu.
Athugasemdir