Torgið og skálin

Torgið og skálin Hér koma nokkrar sólskinsmyndir sem teknar voru fimmtudaginn 5. júní. Eins og líklega mjög margir brottfluttir Siglfirðingar hafa fengið

Fréttir

Torgið og skálin

Hér koma nokkrar sólskinsmyndir sem teknar voru fimmtudaginn 5. júní. Eins og líklega mjög margir brottfluttir Siglfirðingar hafa fengið að vita í gegn um facebook, twitter og aðra samfélagsmiðla hefur verið algjör bongó blíða á Sigló að undanförnu. Og það á víst ekkert að breytast á næstunni. 
 
Á fimmtudaginn sýndi bankahitamælirinn 24 gráður sagði einhver sem kann líklega ekki að ljúga og bætti við að hann væri ekki forritaður fyrir hærri hita. En það gæti nú alveg verið haugalýgi en ég kýs að trúa þessu samt.
 
En ég skellti mér upp í Hvanneyrarskál í gærmorgun og tók nokkrar myndir af bænum. Svo eru einhverjar myndir þarna líka sem teknar voru á torginu áður en ég fór upp í Hvanneyrarskál.
 
hvanneyrarskálinHaldið þið að þessir hafi verið að fíflast eitthvað? Ægir, Baldur og Finni.
 
hvanneyrarskálinSigurjón tók fótboltauppstillinguna.
 
hvanneyrarskálinGulli Stebbi var ekkert upprifinn af því að þurfa að vinna inni í þessum hita.
 
hvanneyrarskálinJói Ott stóð á torginu og sagði "Pís" við alla sem gengu framhjá.
 
hvanneyrarskálinLeikskólabörn fóru göngutúr í bæinn og sungu fyrir þá sem þau hittu.
 
hvanneyrarskálinSimmi að gera við gangstéttina.
 
hvanneyrarskálinMagna, Ómar og Björgvin.
 
hvanneyrarskálinÞað voru nokkrar steinvölur sem urðu á vegi manns á leiðinni upp.
 
hvanneyrarskálinÉg mætti Steina Bjarna um leið og ég kom upp á brúnina.
 
hvanneyrarskálinFínasta útsýni.
 

Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst