Veðurstöðin Skarðsdal
sksiglo.is | Íþróttir | 22.02.2010 | 11:09 | Egill Rögnvaldsson | Lestrar 359 | Athugasemdir ( )
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-18, veðrið kl 11:20 N 4, 6 stiga frost, snjóél, 988,2 hPa og er nokkuð blint, nú höfum við bætt veðurþjónustuna á svæðinu, upp er komin veðurstöð sem sett var upp í samstarfi við sksiglo.is Hún er í 275 metra hæð beint fyrir ofan Skíðaskálan og er von okkar að þetta upplýsi skíðagesti en betur um aðstæður í fjallinu, veðurstöðinna er að finna inn á skard.fjallabyggd.is og nú er unnið að því að bæta við myndvél á Búngusvæði og vonandi verður hún komin í gagnið í þessari viku.
Athugasemdir