Vinnuföt ehf. Fyrirtæki ársins í flokki minni fyrirtækja
sksiglo.is | Almennt | 23.06.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 773 | Athugasemdir ( )
Vinnuföt ehf. sem er í eigu þeirra Árna Arnarsonar, Herdísar
Karlsdóttur og Arnar Arnarsonar var á dögunum valið fyrirtæki ársins í flokki minni fyrirtækja. Árni Arnarson og Örn Arnarson eru
Siglfirðingar og og bræður og líklega þekkja flest allir Siglfirðingar þessa öðlings pilta, en þeir eru synir Guðrúnar
Árnadóttur.
Vinnuföt er eins og nafnið gefur til kynna fyrirtæki sem sérhæfir sig í
sölu á vinnufötum og vinnuskóm og eru með merkin Björnklader, ID Line, Diadora og Ocean.
Fyrirtækið var stofnað árið 2000 og hefur verið ört vaxandi á
vinnufatamarkaðinum.
Glæsilegt fyrirtæki og við óskum þeim að sjálfsögðu til
hamingju með titilinn "Fyrirtæki ársin 2014".
Árni Arnarson og Herdís Karlsdóttir.
Örn Arnarson
Guðjón
Stefán
Erna
Athugasemdir