Vinnustofa fyrir ungt fólk í Fjallabyggð
Vinnustofur: 22-24. júní 2014 | kl.10:00 -12:00 eða 14:00-16:00
Julie Seiler mun vera með vinnustofu fyrir ungt fólk í Fjallabyggð. Þátttakendur munu ganga með henni um umhverfi Fjallabyggðar. Það munu verða skipulagðar mismunandi göngur: Í hópum einsamall og 2 og 2. Það sem kemur fram í þessum göngum mun verða efni til að skapa nýja söngva. Að ganga er góð leið til að kynnast líkamanum og önduninni. Þátttakendur á aldrinum 14 til 20 ára (10-15 manns)
Þessir söngvar munu verða skrifaðir á íslensku og/ eða ensku eða eins og þátttakendum finnst best.
Henni finnst mikilvægt að þátttakendur noti sitt eigið tungumál.
Undirbúningur fyrir Sýningar:25-26. júní 2014 | kl.14:00 -16:00
Sýningar: 28. júní 2014 | kl.13:00 úti á Menningarhúsinu Tjarnarborg
Hugmyndin um að ganga og syngja:
Hvers vegna sumt landslag er áhrifameira en annað? Hvernig getur vindur, fuglar eða haf haft áhrif á hvernig sungið er? Allar þessar spurningar eru viðfangefni verkefnisins.
Um Julie Seiler (http://julieseiller.bandcamp.com/):
Julie Seiler er höfundur að « sensorial » tónleikum sem heita « my best friend is my song » árið 2008. Hún vann í samstarfi við leikstjórann Benoit Gasier, í Rennes, Frakklandi og stofnaði A l’envers, leikhúsið árið 2009. Hún er vön göngu, skrifum og að skapa ýmiskonar hljóð verk. Hún hefur ennfremur reynslu í að starfrækja vinnustofur fyrir leiklistarnema í söng og leik á sensoriskan hátt.
Mynd við frétt fengin af vef Fjallabyggðar. Sjá hér.
Athugasemdir