Von um loðnu ?

Von um loðnu ? Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem nú er djúpt austur af Langanesi, fann þar loðnutorfu í gær. Unnið er við rannsókn á sýnishornum um

Fréttir

Von um loðnu ?

Súlan EA 300 við Óskarsbryggju á Siglufirði
Súlan EA 300 við Óskarsbryggju á Siglufirði
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem nú er djúpt austur af Langanesi, fann þar loðnutorfu í gær. Unnið er við rannsókn á sýnishornum um borð.

Loðnuskipið Súlan, sem hefur verið að leita loðnu norður af landinu, hefur hinsvegar ekki fundið neitt umtalsvert magn.
Nú eftir hádegið í dag lá þetta kunna loðnuveiðiskip við löndunarbryggju Síldarvinnslunnar á Siglufirði, og minnir þar óneitanlega á gömlu góðu dagana þegar Súlan kom þangað ásamt fleiri skipum með fullfermi af loðnu.

Tímar sem vart eiga eftir að endurtaka sig við þessa bryggju, Óskarsbryggju í framtíðinni þar sem nauðsynlegur löndunarbúnaður er ekki lengur til staðar á Siglufirði, svo og annar nauðsynlegur búnaður til loðnuvinnslu.

Athugasemdir

12.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst