Rauða húsið undirbúið fyrir hækkun

Rauða húsið undirbúið fyrir hækkun Starfsmenn Rauðku vinna nú hörðum höndum að undirbúningi hækkunar rauða hússins við smábátahöfnina.

Fréttir

Rauða húsið undirbúið fyrir hækkun

Hérna má sjá grindurnar sem húsið mun sitja á
Hérna má sjá grindurnar sem húsið mun sitja á
Starfsmenn Rauðku vinna nú hörðum höndum að undirbúningi hækkunar rauða hússins við smábátahöfnina.

Húsið kemur til með að hækka um heila 50 cm þannig að þetta er mikil framkvæmd.

Undirbúningur hefur verið töluverður enda vandasamt að lyfta heilu húsi.

Búið er að koma tjökkum fyrir víðsvegar um húsið og stífa grindina af til þess að húsið gliðni ekki þegar því er lyft af grunninum.

Húsið situr svo á sérsmíðuðum járngrindum meðan steypumótum er komið fyrir og síðan steypt.



Hér má sjá einn af tjökkunum sem koma til með að lyfta húsinu.




Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst