Hlaut nemendaverðlaun fyrir mastersritgerð
Skipulagsverðlaunin 2014 voru afhent af Skipulagsfræðingafélagi Íslands í Ráðhúsi
Reykjavíkur þann þann 26. nóvember sl.
Þar hlaut Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi hjá Fjallabyggð nemendaverðlaunin fyrir mastersritgerð sína í Skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands “Ferðavenjur skólabarna í Reykjavík - Áhrif hins byggða umhverfis á val ferðamáta”.
Var dómnefnd sammála um að hér væri á ferðinni áhugavert grasrótarverkefni. Það er samfélagslega
mikilvægt að hafa áhrif á lífsstíl og það að ganga í skóla er og verði virkur ferðamáti. Verkefnið var vel
unnið og mikilvægt skref í átt að sjálfbærri þróun og sjálfbæru skipulagi sveitarfélags. Vill dómnefnd
hvetja sveitarfélög til að huga að ferðavenjum barna við skipulagsgerð og benda á mikilvægi þess að
fara fótgangandi í skóla sé virkur ferðamáti.
Íris Stefánsdóttir er ráðin sem tæknifulltrúi hjá Fjallabyggð og mun hún leysa Arnar Frey Þrastarson af næstu 12 mánuði í námsleyfi hans.
Íris útskrifaðist sem tækniteiknari frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 2010 og lauk BS í umhverfisskipulagi árið 2012 frá Landbúnaðarháskóla Íslands. S.l. vor lauk hún svo mastersnámi í skipulagsfræðum við sama skóla. Íris flutti frá Siglufirði til Mosfellsbæjar 1998 og hefur búið þar síðan.
Hún á ættir að rekja til Siglufjaðrar hafa tengslin við bæinn alltaf verið sterk og hefur hún komið hingað reglulega í heimsókn til ömmu og afa á Fossveginum þeirra Pálínu Gústafsdóttur og Sigtryggs Kristjánssonar. Íris er í sambúð með Guðmanni Sveinssyni og saman eiga þau Dag Nóa, 4 ára.
Texti: Tekin af heimasíðu Fjallabyggðar og Kristín Sigurjónsdóttir
Mynd: Aðsend
Athugasemdir