Skemmtilegt viðtal við Hrólf í Hrímni á Bylgjunni
Okkar ástkæri hár og skeggsnyrtir Hrólfur "Siglfirðingur" Baldursson.
Var í mjög skemmtilegu viðtali í þættinum Í BÍTIÐ á útvarpsstöðinni Bylgjunni og geta lesendur hlustað á spjallið sem er sér úttekið úr þættinum hér:
Í viðtalinu er farið víða um völl og sérstaklega er talað um hinn mikla uppgang sem á sér stað á öllum sviðum hér í okkar fagra firði.
Spjallað er meðal annars um fasteignaverð, opnun Sigló Hótel, Segull 67, skíðasvæðið og margt fleira.
Hrólfur stendur sig vel enda er hann atvinnumaður í spjalli, "lýgur" alla daga á Hár og skeggsnyrtistofunni Hrímni og fær meira að segja borgað fyrir það.
Mynd frá fréttavef Sigló.is
Texti:
Jón Ólafur Björgvinsson
Fréttasími: 842-0089
Athugasemdir