Lista- og menningarganga FS
Ferðafélag Siglufjarðar stendur fyrir hinni árlegu lista- og menningargöngu fyrir jólin, fimmtudaginn 13. desember. Vinnustofur listamanna og önnur menningarsetur verða opin fram eftir kvöldi ásamt kynningu á starfseminni og einhverju óvæntu. Athugið að nú verður þetta með nokkuð öðru sniði en áður og ekki gengið skipulega á milli heldur getur hver og einn ákveðið hvert hann fer og hversu miklum tíma hann eyðir á hverjum stað. Frá kl. 20.30 verður boðið upp á tónlist og kakó í Bláa húsinu. Safnast verður saman á Rauðkutorgi kl. 19.00. Verð kr. 500.
Ferðafélag Siglufjarðar.
Athugasemdir