Reiðhjól frá Amsterdam

Reiðhjól frá Amsterdam Hálfdán Sveinsson eigandi og rekstraraðili Siglunes Guesthouse var spurður út í þessi hjól og hvað væri framundan með þau. Hann

Fréttir

Reiðhjól frá Amsterdam

Reiðhjól frá Amsterdam
Reiðhjól frá Amsterdam

Ný þjónusta í boði hjá Siglunes Guesthouse

Vakið hefur athygli að um götur bæjarins hafa verið á ferðinni virðuleg hjól í gömlum stíl og borið merki Siglunes Guesthouse.

Hálfdán Sveinsson eigandi og rekstraraðili Siglunes Gusthouse var spurður út í þessi hjól og hvað væri framundan með þau. Hann sagði okkur frá því að er hann var á ferðinni úti í Hollandi fyrir stuttu fann hann þessi hjól. Honum fundust þau alveg í anda Siglunes Guesthouse, í fallegum gömlum stíl.


Hálfdán Sveinsson eigandi Siglunes Guesthouse á einum reiðskjótanna

Ákvað hann að flytja inn nokkur stykki og bjóða gestum Siglunes upp á þá þjónustu að fá þau til að hjóla um bæinn. Þessi þjónusta hefur mælst alveg sérstaklega vel fyrir og gestirnir alsælir að fá að upplifa bæinn á þessum farartækjum.


Starfsmaður Siglunes Guesthouse getur staðfest að það er einstaklega
gott að hjóla á háu og þýðu hjólinu.

Heimasíða Siglunes Guesthouse: http://hotelsiglunes.is/

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir og Nonni Björgvins
Texti
: Kristín Sigurjónsdóttir



Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst